Verð á vefsíðu

Ein síða kostar 59.000 kr., allt að sex síður kosta 99.000 kr. og vefverslun kostar 169.000 kr. Hýsing kostar 8.900 kr. á mánuði og er án bindingar.

Ein síða

59.000 kr.

165.800 kr. fyrsta árið

Allt að sex síður

99.000 kr.

205.800 kr. fyrsta árið

Vefverslun

169.000 kr.

275.800 kr. fyrsta árið

Hýsing: 8.900 kr. á mánuði. Engin binding.

Fyrsta árið er vefurinn og tólf mánuðir af hýsingu. Það er dæmi, ekki tilboð.

Hvað fæ ég fyrir verðið?

Ein síða skiptist í kafla og virkar í síma og tölvu. Ef þú velur allt að sex síður færðu líka fréttir eða blogg og eyðublað fyrir fyrirspurnir. Með vefverslun færðu vörusíður og helstu síður verslunarinnar. Ég vel greiðsluleið með þér. Ljósmyndataka, lógó og auglýsingar eru utan pakkanna.

Hvað kostar vefurinn fyrsta árið?

Fyrsta árið greiðir þú fyrir gerð vefsins og hýsingu meðan hann er hjá mér. Miðað við tólf mánuði í hýsingu er heildin þessi.

  • Ein síða: 165.800 kr.
  • Allt að sex síður: 205.800 kr.
  • Vefverslun: 275.800 kr.

Hvað greiði ég annað árið?

Ef vefurinn er áfram í hýsingu hjá mér kosta tólf mánuðir 106.800 kr. á ári miðað við sama mánaðargjald. Lénið, öryggisvottorðið og afritin fylgja hýsingunni. Uppfærslur og allt að tvær litlar breytingar á mánuði fylgja líka. Sjá nánar um hýsingu og viðhald.

Hvenær borga ég og hversu fljótt get ég opnað?

Þú borgar fyrir vefinn eftir að þú hefur séð hann og samþykkt. Tvær umferðir af breytingum fylgja fyrir opnun. Spurðu um tímasetningu þegar umfangið liggur fyrir. Ef þú stefnir á að opna fyrir ákveðinn dag skaltu nefna dagsetninguna þegar þú hefur samband.

Hvað á ég og get ég flutt vefinn?

Þú átt textann og myndirnar og hýsingin er án bindingar. Ef þú segir henni upp færðu afrit af vefnum og lénið er flutt yfir á þig. Þú getur því tekið slóðina með þér.

Hvernig vel ég rétta stærð og byrja?

Ef fólk þarf helst að sjá opnunartíma eða hafa samband gæti ein síða dugað. Skoðaðu hvaða vefur hentar fyrirtækinu eða lestu um vefsíðugerð í Hveragerði. Hafðu samband og skrifaðu hvað viðskiptavinir þurfa að finna eða geta gert á síðunni.

Uppfært

FreeAudit

Ókeypis úttekt á vef, án aðgangs.

Prófa FreeAudit